Ég trúi ekki enn að ég hafi verið rænd en það er víst svo.
Síðasta miðvikudag var veskinu mínu stolið og í því var debit kortið mitt, kredit kortið, ökuskírteinið, háskólaskírteinið, erasmus skírteinið og um 30.000 krónur sem ég var nýbúin að taka út úr hraðbanka. Um morguninn þegar ég vaknaði var ég frekar slöpp og það tók mig um korter að peppa mig upp í að fara í skólann. Ég átti tíma í Listasögu. Í tímanum var ég endalaust að hósta og snýta mér svo ég ákvað að fara pínu fyrr úr tímanum. Ég ætlaði að drífa mig heim að leggja mig áður en næsti tími myndi byrja.
Þegar ég kom út úr tímanum mundi ég eftir því að ég þurfti að fara í hraðbanka og taka út pening fyrir leigunni. Ég hafði tekið bæði kortin með mér til þess að vera viss um að geta tekið nóg út úr hraðbankanum. Vanalega er ég ekki með bæði kortin á mér. Þegar ég var nýbúin að taka peninginn út og var á leið í metroið til að komast heim þá hringir síminn. Ég stóð þarna eitthvað að vesenast með veskið mitt, símann og bakpokann svo ég set veskið í bakpokann. Síðan finn ég allt í einu eitthvað og kíki aftur á bakpokann. Hann er þá bara galopinn og veskið horfið!!! Einhver aumingi búinn að stela veskinu mínu!! Það fyrsta sem ég hugsaði var að loka kortunum mínum svo ég ætlaði að hringja í einhvern til að hjálpa mér en mundi þá eftir að ég var ekki með neina inneign á símanum. Þá hugsaði ég: ok, best að kaupa inneign, en nei úps enginn peningur......Þá var ég bara alveg....shiiiiiitttt... ég verð að drífa mig heim á netið til að ná í einhvern.
Ég dreif mig með metro heim, kveikti á tölvunni í flýti og vonaðist til að einhver væri online til að hjálpa mér. Sem betur fer var Ingunn á msn og hún hringdi í Ödda fyrir mig sem hringdi svo strax í mig. Þegar ég byrjaði að tala við Ödda brotnaði ég alveg bara niður og fór að háskæla. En Öddi er svo klár og hann hjálpaði mér ekkert smá mikið. Hann bara reddaði öllu fyrir mig. Hringdi í bankann minn og lét loka kortunum og pantaði ný kort í leiðinni. Ég veit bara ekki hvað ég hefði gert ef hann hefði ekki hjálpað mér svona.....takk Öddi :).
Ég fór svo að tala við lögguna sem skrifaði skýrslu um atvikið, fór langur tími í að skrifa nafnið mitt og að tala um nafnið á bankanum mínum, Kaupthing, hehe. Löggan sagði mér að í 80% tilvika þá finnst veskið aftur með kortunum (en engum pening of course) og þeir ætla að hringja ef veskið mitt finnst, sem ég vona. Þessir lúða dópistar taka víst oftast bara peninginn og láta kortin í friði. Svaka heppilegt að ég var nýbúin að taka út leigupening :( .
En fyrir utan smá uppnám og reiði í garð þessa steliþjófa þá líður mér bara ágætlega og
shit happens........but I wont let it happen again!!! Ehehe
Ætla svo smá út að skemmta mér í kvöld og hætta að hugsa um þennan óhappa miðvikudag.
Bara rétt rúm vika þangað til Anika og Öddi koma í heimsókn, get ekki beðið. Hlakka til að sjá ykkur.
Læt svo nokkrar myndir fylgja.....
Bloggar | 7.3.2008 | 13:28 (breytt kl. 14:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)