Jæja þá er ég loksins byrjuð að læra. Ég hef frestað því að byrja allt of lengi. Í dag er ég búin að lesa alveg fullt í ítölskum bókmenntum og er ekki enn búin. Ætla að halda áfram um leið að ég er búin að blogga smá. Það má nú alveg taka bloggpásu er það ekki.
Ég veit ekki hvernig ég ætla að ná prófunum í vor/sumar en ég ætla nú samt að reyna mitt besta. Ég fer í þrjú próf og þau eru öll munnleg. Ég er rosalega stessuð því að ég er alls ekki vön því að taka munnleg próf og hvað þá á öðru tungumáli. Ég ætla bara að vona að þessi próf fari betur heldur en síðasta munnlega próf sem ég man eftir að hafa farið í. Það var í stærðfræði í MR. Það er dagur sem er best gleymdur held ég. Ég var svo stressuð að ég hélt að það myndi líða yfir mig, svo mundi ég bara alls ekki neitt og stóð þarna bara eins og einhver auli sem væri að villast inn í vitlausa skólastofu. En ég er núna eldri og klárari, vona ég hehe. Nei nei ég er viss um að í þetta skipti gangi þetta betur, hver veit nema ég sé bara natural talent í munnlegum prófum á ítölsku.
Í gær fór ég smá út á lífið með vinum mínum hér. Ég bauð nokkrum fyrst heim til mín í smá bjór, snakk og ávexti. Mér var reyndar sagt þegar ég flutti inn að eina reglan væri að ég mætti ekki halda partý en þetta var nú bara smá smá, engin heví læti eða neitt svo það hlýtur að vera í lagi. Stelpan sem býr með mér er mjög sjaldan heima um helgar og ég reyndar hitti hana ekki mjög oft ef ég verð að segja eins og er. Stundum þegar ég kem heim og hún er heima þá bregður mér því það er oftast eins og ég búi hérna ein hehe. En já það var alveg ágætiskvöld í gær bara. Við fórum á stað sem heitir Moretti, eins og bjórinn ítalski. Frekar subbulegur staður en gaman að dansa þar. Tónlistin sem er spiluð er pínu svona suður amerísk svo það er eins og maður sé komin til Kúbu eða eitthvað. Allir í svaka stuði.
Næstu helgi eru tónleikar með The Wombats í Flórens og mig langar alveg rosa mikið að fara. The Wombats eru t.d. með lagið Lets dance to Joy division, fyrir þá sem vilja vita. En ég veit ekki hvort ég fari, enn svolítið óákveðið. Svo helgina 25.-27. apríl fer ég til Bologna, Ferrara og Ravenna með Erasmus félaginu hér í Genova. Ég get ekki beðið, held að það verði rosa gaman.
Í gær var síðasti dagurinn í ítölsku tímunum og við gáfum kennaranum blóm og kort til þess að þakka fyrir okkur. Kennarinn er mjög indæl ung kona. Hún var svo hrærð þegar við gáfum henni þetta að hún fór næstum því að gráta. Algjör dúlla. Sagði endalaust að við værum svo skemmtilegur bekkur og svo eftir tímann bauð hún okkur öllum upp á Aperitivo.
En jæja já best að halda áfram að læra, heyri líka að þvottavélin er búin svo ég verð að fara að hengja upp. Vonandi áttuð þið öll góða helgi og ég óska ykkur öllum góðrar viku og til hamingju með afmælið Krúsa!
Flokkur: Bloggar | 6.4.2008 | 15:09 (breytt kl. 15:39) | Facebook
Athugasemdir
Jæja.. gott að þú ert byrjuð að læra.. ekki að ég sé of dugleg af því sjálf reyndar..
Ég var nú samt farin að hafa áhyggjur af þér því maður var ekkert búin að heyra af þér í langan tíma.. en gott að allt sé í orden..
Hafðu það gott.. RIIIIISA knús og koss.. kv. Imba
Imba (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 17:50
hæ hæ gaman að heyra fréttir af þér... var farin að hafa pínu áhyggjur :) Gott að heyra að allt gangi vel og ég veit að þú átt eftir að massa prófin ekki spurning EF ekki þá er það bara allt í lagi :) þú er nú þegar búin að læra alveg heilmikið :)
Knús og kossar Sessý
sessý (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 00:03
Hæ
frábært að þú skulir ætla til Bologna ofl borga. Það er þá ágætt að við ákváðum að fara til Sikileyjar í staðinn... Góða skemmtun.
Þú ert dugleg að byrja að læra. Gangi þér vel með það.
Knús og kram
Anika
Anika (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 20:44
Hæ sæta bara að kvitta fyrir mig alltaf að tékka á þér... þú kemur í skólann með mér í haust er það ekki, ferð ekkert að ílengjast þarna úti
Laufey (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 00:18
hæ hæ vildi bara segja hæ og góða ferð og skemmtu þér rosalega vel
Saknaðar kveðjur
Sessý
Sessý (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 15:26
Hæhæ!
Þú átt eftir að standa þig súper vel í prófunum, ég er viss um það!
Takk æðislega fyrir að hringja um daginn, það var sjúklega gaman að heyra í þér :)
Krúsa (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.