Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Sessý
Jæja núna liggur leiðin heim á klakann LOKSINS :) Síminn minn er ónýtur og þar af leiðandi eru öll númer glötuð þannig að ég óska Þér/ykkur bara góðrar ferðar hér á netinu:) Góða ferð og hlakka til að sjá þig BARA Á MORGUN HELST :) hehehehe Knús og kossar Sessý
Sesselja (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 28. júlí 2008
Sessý
Hæ hæ vonandi er allt gott að frétta og vonandi gengur ferðalegið vel :) hafðu það gott kv. Sessý
Sesselja (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. júlí 2008
Sessý
hæ hæ sæta hvað er að frétta :) kíki hingað inn reglulega í leit að fréttum :) vonandi er allt gott að frétta... og þú hefur öruglega komist í gegnum öll prófin slysa laust :) Allt gott að frétta frá Íslandi sól og blíða alla daga :) En góða ferð og halltu áfram að njóta þess að vera á ítalíu :) kv Sessý
Sesselja (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 23. júní 2008
Kveðja frá systir
Sitjum hérna saman mamma og Anika að skoða síðuna þína. Við söknum þín voða mikið. Okkur fannst svo gaman að heyra í þér um daginn og krakkarnir spyrja oft um þig. Daníela spyr alltaf "hva e Gunniddu" og fer að leyta að þér þegar við komum í heimsókn. Henni finnst alltaf jafn gaman að grúska í herberginu þínu, þar er alls konar lítið dót. Bestu kveðjur elsku Gunný mín, þín systir Brynja
Brynja Böðvarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 2. apr. 2008
Sikileyjarfari
Hallo, halló. Frábærar myndir frá Sikiley. Etna flott. Það er ekki laust við að mig taki að svengja þegar ég sé þessa líka fínu pizzu með kartöflum og fleiru, girnileg. Kossar og knús, ma
Systa (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. mars 2008
Til hamingju
Sæl gullið mitt. Ætla bara segja til hamingju með íbúðina og vona að það farið voða vel um þig þar. Styttra fyrir þig í skólann og að hitta vinina. Gangi þér vel í skólanum, stelpan mín, kveðja ma
Systa (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 6. mars 2008
OMG!!
Ég held bara að miðað við lýsingarnar þá kemur þú bara ekkert heim aftur!! Eða hvað Gunný-lingur? Kv Maja :)
María Y (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 22. feb. 2008
Kveðja frá Pabba
Sæl Gunnhildur mín. Takk fyrir skilaboðin. Gott að þú er að koma þér fyrir rét hjá Stazione Prinsipe lestarstöðinni og allt gengur vel og þú ert ánægð. Gaman að geta fylgst með þér á blogginu. Viltu sendu mér GPS punktana. Taktu fullt af myndum og ég sendi þér fleirri myndir héðan. Skila kærri kveðja frá Fríðu.
Böðvar Guðmundsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 18. feb. 2008
Sæl sæl
Velkomin til Ítalíu... sagði það að ég hefði átt að koma með sko... svolítið tómlegt án þín í tímum núna :´( mannst svo að senda mér myndir af sætu strákunum bara svona svo að við getum rennt yfir þær í sameiningu ;) Kv. Laufey
Laufey Ósk Christensen (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 8. feb. 2008
Kveðja frá Klettagötugenginu
Loksins eru allir hérna orðnir frískir eftir veikindi sem herjað hafa á fjölskylduna síðastliðnar tvær vikur. Kristófer og Daníela fengu bæði eyrnabólgur ofaní allt saman. Dagurinn í dag var mjög skemmtilegur hjá krökkunum, fengu að fara í búningum í skólann og voða fjör. Ekki var farinn sælgætisleiðangur að þessu sinni enda kalt og mikill snjór. Þú ert svo dugleg og sniðug Gunný mín að drífa þig svona út í skiptinám. Hvernig sem gengur verður þetta allavega ómetanlegt innlegg í reynslubankann þinn. Vonum að þér gangi vel í náminu og að finna þér íbúð/herbergi við hæfi. Okkar allrabestu kveðjur frá kalda Íslandi.
Brynja Böðvarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. feb. 2008